Við viljum byrja á að árétta atriði í nýútgefnum leiðbeiningum um göngur og réttir vegna COVID-19:
- Vegna fjöldatakmarkana er mælst til þess að gestir komi ekki til réttarstarfa.
- Þau sem taka þátt í göngum og réttum hlaði niður í síma smáforritinu Rakning C-19 og hafi meðferðis andlitsgrímur og handspritt.
- Fjallaskálar/húsnæði sem notað er við göngur eru eingöngu opin fyrir smala og þá sem hafa hlutverk í göngum/leitum þann tíma sem göngur/leitir standa yfir.
Athugið að vegna sóttvarna verður ekki réttarkaffi í Fellsendarétt.
Leiðbeiningar í heild sinni ásamt gátlistum má finna á vef Bændasamtaka Íslands (www.bondi.is) eða með því að smella hér: Leiðbeiningar – Göngur og réttir
Réttir í Dalabyggð 2021