Hreinsun rotþróa

DalabyggðFréttir

Árleg hreinsun rotþróa í Dalabyggð fer nú fram í fyrri hluta júnímánaðar. Þetta árið verður hreinsað í Suðurdölum og Haukadal.
Árið 2015 verður hreinsað í Laxárdal, Skarðsströnd og Saurbæ og árið 2016 á Skógarströnd, Hvammssveit og Fellsströnd.
Til þess að hreinsun geti gengið auðveldlega fyrir sig þurfa húseigendur að tryggja óheft aðgengi að lóðum sínum og sjá til þess að hlið séu ólæst.
Til að hægt sé að fjarlægja seyru úr öllum hólfum rotþróar þarf að lágmarki að vera 4 tommu (10 cm) stútar á öllum hólfum hennar.
Nauðsynlegt er einnig að merkja staðsetningu rotþróa vel t.d. með veifu eða flaggi, til að auðvelda hreinsunarverktakanum að finna þær.
Rotþróarhreinsunin er innifalin í árgjaldi sem sveitarfélagið innheimtir samhliða fasteignagjöldum og tekur gjaldið mið af því að um sé að ræða eina losun á þriggja ára fresti.
Ef íbúar í Laxárdal, Skarðsströnd, Saurbæ, Skógarströnd, Hvammssveit eða Fellsströnd telja brýnt að hreinsað verði nú í ár er þeim bent á að óska eftir því með tölvupósti á netfangið dalir@dalir.is eða hringja á skrifstofu sveitarfélagsins. Áskilin er réttur til að innheimta sérstaklega fyrir aukahreinsun meti verktaki hreinsun ótímabæra.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei