Húmorsþing Þjóðfræðistofu

DalabyggðFréttir

Um helgina verður haldið þriðja Húmorsþing Þjóðfræðistofu á Hólmavík. Þingið er bæði vetrarhátíð og málþing um húmor sem fræðilegt viðfangsefni. Munu fræðimenn fjalla þar um húmor útfrá ýmsum forsendum.
Meðal fyrirlesara og listamanna verða Íris Ellenberger, Ása Ketilsdóttir, Kristinn Schram, Þorsteinn Guðmundsson, Jón Jónsson, Kolbeinn Proppé, Kristín Einarsdóttir og Uppstöðufélagið.
Auk fræðilegrar dagskrár verður meðal annars barþraut um íslenska kímni, sýning á heimildamyndinni Uppistandsstelpur og veigamikil uppistandsdagskrá. Auk þess verður í annað sinn efnt til grínkeppninnar Orðið er laust.
Dagskrá Húmorsþingsins og ítarlegri upplýsingar má sjá á heimasíðu Þjóðfræðistofu.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei