Leigjendur geta átt rétt á húsaleigubótum skv. lögum nr. 138/1997 um húsaleigubætur. Umsóknir um húsaleigubætur þurfa að berast skrifstofu Dalabyggðar fyrir 16. janúar 2015. Berist umsókn síðar verða húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánuðar.Upplýsingar um húsaleigubætur og umsóknarblöð eru á heimasíðu Dalabyggðar og á skrifstofu sveitarfélagsins.
Með umsókn skulu fylgja
– frumrit þinglýsts húsaleigu-samnings
– íbúavottorð frá þjóðskrá
– staðfest afrit skattframtals síðasta árs
– launaseðlar þeirra er búa í íbúðinni fyrir síðustu þrjá mánuði eða upplýsingar um reiknað endurgjald
– staðfesting skóla um nám barna umsækjenda 20 ára og eldri.