Húsaleigubætur 2014

DalabyggðFréttir

Umsóknir um húsaleigubætur þurfa að berast skrifstofu Dalabyggðar fyrir 16. janúar 2014. Berist umsókn síðar verða húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánuðar.
Leigjendur geta átt rétt á húsaleigubótum skv. lögum nr. 138/1997 um húsaleigubætur.
Upplýsingar um húsaleigubætur og umsóknarblöð eru á heimasíðu Dalabyggðar og á skrifstofu sveitarfélagsins.
Með umsókn skulu fylgja
· frumrit þinglýsts húsaleigusamnings
· íbúavottorð frá þjóðskrá
· staðfest afrit skattframtal síðasta árs
· launaseðlar þeirra er búa í íbúðinni fyrir síðustu þrjá mánuði eða upplýsingar um reiknað endurgjald.
· staðfesting skóla um nám barna umsækjenda, 20 ára og eldri.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei