Þorrablót Laxdælinga

DalabyggðFréttir

Þorrablót Laxdælinga verður haldið í 60. sinn laugardaginn 25. janúar í Dalabúð. Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20:00.
Dalakot reiðir fram þorramatinn og Hlynur Ben. og hljómsveit halda uppi stuðinu.

 

Miðapantanir þurfa að berast Eddu í síma 434 1220/849 5983, Siggu í síma 434 1384 Soffíu í síma 487 1477 í síðasta lagi miðvikudaginn 22. janúar.
Sækja þarf pantaða miða í Dalabúð föstudaginn 24. janúar milli kl. 16 og 19. Athugið að það þarf líka að panta miða á ballið.

 

Almennt miðaverð er 6.500 kr., eldri borgarar 4.500 kr. og á ballið eingöngu 3.000 kr.
Aldurstakmark er 16 ár.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei