Íbúafundur verður haldinn fimmtudaginn 7. nóvember kl. 20:00 í Dalabúð.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
1. Kynning á fjárhagsáætlun Dalabyggðar 2020 – 2023.
2. Framtíðin varðandi meðferð og förgun sorps. Stefán Gíslason, umhverfisfræðingur og framkvæmdastjóri UMÍS ehf. Environce, verður með kynningu.
3. Niðurstöður stefnumótunar í framhaldi af íbúaþingi.