Íslandsmeistaramótið í hrútadómum

DalabyggðFréttir

Íslandsmeistaramótið í hrútadómum verður haldið sunnudaginn 21. ágúst kl. 14 á Sauðfjársetrinu í Sævangi.
Jafnan er góð þátttaka í hrútadómunum, bæði í flokki þaulreyndra hrútadómara og líka í flokki óvanra hrútaþuklara. Að venju verður kjötsúpa á boðstólum í hádeginu og kaffihlaðborð allan liðlangan daginn.
Síðasta ár sigraði Guðmundur Gunnarsson bóndi Kjarlaksvöllum í Saurbæ, í öðru sæti var Vilberg Þráinsson Hríshóli í Reykhólahreppi og í þriðja sæti varð Bjarki Reynisson Kjarlaksvöllum.
Á Sauðfjársetrinu eru nú uppi þrjár sérsýningar, fyrir utan fastasýningu safnsins sem ber yfirskriftina Sauðfé í sögu þjóðar. Í kaffistofunni er sýningin Manstu? sem er greiningarsýning á ljósmyndum Tryggva Samúelssonar sem voru teknar á árabilinu 1950-1970. Á listasviðinu er sýningin Álagablettir og í sérsýningarherbergi verður opnuð ný sýning í byjun september sem ber yfirskriftina Sumardvöl í sveit.
Mikið hefur verið um að vera á Sauðfjársetrinu á Ströndum í sumar, margvíslegar uppákomur og viðburðir. Nú er annað árið sem Náttúrubarnaskóli á vegum Sauðfjársetursins er starfræktur og hefur yfirnáttúrubarnið Dagrún Ósk Jónsdóttir umsjón yfir verkefninu sem hefur tekist mjög vel.
Safnið verður opið alla daga milli 10-18 út ágúst. Í haust er stefnt að frekari viðburðum. Þá verða m.a. þjóðtrúarkvöldvaka, handverksnámskeið o.fl. Árleg sviðaveisla verður síðan haldin í október.
Nánari upplýsingar má fá í síma 693-3474

Íslandsmeistaramótið í hrútadómum – Facebook

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei