Jólagjöf til starfsmanna Dalabyggðar

SveitarstjóriFréttir

Dalabyggð auglýsir eftir framleiðindum, veitinga/verslunar- og/eða þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem er jólagjöf sveitarfélagsins til starfsmanna Dalabyggðar.

Fyrirkomulaginu verður þannig háttað að starfsmenn fá gjafabréf ásamt upptalningu á aðilum í Dalabyggð sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og/eða þjónustu hjá viðkomandi fyrirtæki.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að nota gjafabréfin á tímabilinu frá 15. desember 2022 – 28. febrúar 2023.

Skilyrði fyrir þátttöku er að rekstraraðili/fyrirtæki sé skráð hjá hinu opinbera og sé starfandi í Dalabyggð.

Um er að ræða ríflega 80 gjafabréf sem afhent verða starfsmönnum Dalabyggðar um miðjan desember 2022.

Áhugasamir skrá sig til leiks með því að senda tölvupóst á netfangið dalir@dalir.is

Skráningafrestur er til og með 5. desember n.k.

Nánari upplýsingar um verkefnið veitir Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri á netfanginu sveitarstjori@dalir.is eða í síma 430-4700

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei