Jólatré í Grafarkotsskógi

DalabyggðFréttir

Slysavarnadeild Þverárþings og Björgunarsveitin Heiðar í samvinnu við Skógræktarfélag Borgarfjarðar verða með jólatrjáasölu í Grafarkostsskógi laugardaginn 15. desember og sunnudaginn 16. desember klukkan 12-16.
Grafarkotsskógur er við þjóðveg 1, skammt norðan við Munaðarnes. Björgunarsveitarmenn verða á staðnum til að aðstoða fólk við val á jóltréi í skóginum og fella það. Björgunarsveitin sér einnig um að pakka trjánum í net.
Eitt verð er óháð stærð, 5.500 kr.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei