Jörfagleði 2011 – markaður

DalabyggðFréttir

Á Jörfagleði verður markaðsdagur í Björgunarsveitarhúsinu, laugardaginn 16. apríl, milli kl. 12 og 18.
Allir þeir sem áhuga hafa á kynna og/eða selja vöru sína eða þjónustu eru beðnir um að hafa samband við Herdísi í síma 695 0317 eða senda póst á netfangið jorfagledi2011@gmail.com.
Nú þegar eru farnar að berast skráningar til nefndarinnar. Þátttakan var frábær á síðustu hátíð og mæltist þessi dagur vel fyrir.
Allir velkomnir!
F.h. Menningarnefndar,
Herdís
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei