Kjötiðnaðarnámskeið – af beini til afurðar –

DalabyggðFréttir

Tveggja daga námskeið í Miðskógi í Dalabyggð.

Laugardaginn 15. apríl kl. 09:00 – 16:00 
Sunnudaginn 16. apríl kl. 09:00 – 15:00

Verð: 80.000 kr.- með lambskrokk
Verð: 58.000 kr.- ef þátttakandi kemur með lambskrokk
Þátttakendur eiga allar sínar afurðir af námskeiðinu!

Stéttarfélög greiða námskeiðagjaldið (allt að 100%). Nánari upplýsingar hjá Símenntun (ivar@simenntun.is)

Leiðbeinendur eru kjötiðnaðarmeistararnir: Rúnar Ingi Guðjónsson og Jónas Þórólfsson.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja auka þekkingu sína á vinnslu og frágangi afurða- sérstaklega þeim sem hafa áhuga á heimavinnslu afurða.

Skráning hjá Ívari í síma 695-2579 eða ivar@simenntun.is

Fyrri daginn verður farið yfir úrbeiningu á lambskrokk, þar sem nemendur fá fyrst sýnikennslu í úrbeiningu, en fá svo sjálfir að úrbeina skrokk eftir eigin óskum, undir handleiðslu kennara.

Seinni daginn verður farið yfir pylsu- og farsgerð. Notast verður við hráefni frá fyrri kennsludegi og búnar til lambapylsur. Allir nemendur fá að gera pylsu eftir eigin uppskrift og fá innsýn inn í að hanna eigin kryddblöndu.

Námskeiðið er samstarfsverkefni Kjörvinnslunnar í Miðskógi, Frávik, DalaAuðs og Símenntunar á Vesturlandi.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei