Krabbameinsfélag Breiðfirðinga – íbúðir

DalabyggðFréttir

Að Rauðarárstíg 33 í Reykjavík eru íbúðir sem ætlaðar eru til afnota fyrir krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra af landsbyggðinni meðan á meðferð eða rannsókn stendur.

Krabbameinsfélag Íslands á þar nokkrar íbúðir með öðrum félagasamtökum, og hafa aðildarfélög K.Í. aðgang að þeim með einhverjum fyrirvara. Landsspítalinn sér um rekstur íbúðanna. Upplýsingar og úthlutun er á geisladeild spítalans í síma 543 6800 (Sigurveig) og einnig aðstoða undirritaðar við útvegun íbúðanna.
Krabbameinsfélag Breiðfirðinga greiðir húsaleigu í íbúðunum vegna sjúklinga úr Dölum eða Reykhólahreppi. Sama gildir ef sjúklingar dvelja á Sjúkrahóteli Landsspítalans um tíma.
Þá eru einnig í boði hvíldarvikur á ýmsum stöðum á landinu fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra, samkvæmt nánari auglýsingum hjá Krabbameinsfélagi Íslands, eða á vefnum Krabb.is.. Hægt er að hafa samband við Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8 Reykjavík og fá ráðleggingar og aðstoð af ýmsu tagi Sími 540-1900 eða gjaldfrjáls sími 800-4040.
Samúðarkort Krabbameinsfélags Breiðfirðinga eru til sölu hjá Arion banka í Búðardal og hjá formanni og ritara félagsins. Einnig hægt að hringja í Krabbameinsfélag Íslands, og greiða með greiðslukorti.
Frekari upplýsingar og aðstoð er hægt að fá hjá eftirtöldum stjórnarmönnum í Krabbameinsfélagi Breiðfirðinga:
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir Mýrartungu II, formaður, sími 434 7754 / 893 6396
Þrúður Kristjánsdótttir Sunnubraut 19, Búðardal, ritari, sími 434 1124 / 894 1824
Ingibjörg Kristjánsdóttir, Garpsdal, gjaldkeri, sími 434 7799 / 892 1768.

Krabbameinsfélag Íslands

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei