Krosshólaganga 19. júní

DalabyggðFréttir

Helgiganga í minningu Auðar djúpúðgu verður farin laugardaginn 19. júní í Dölum, þar sem hún nam land fyrir rúmum 1100 árum. Auður djúpúðga Ketilsdóttir var eina konan í hópi landnámsfólks sem fór fyrir eigin leiðangri til Íslands og ein fárra þeirra sem Landnámabók segir að hafi verið kristinnar trúar.
Bílastæði eru við Krosshólaborg í Hvammssveit. Göngufólki er ráðlagt að safnast þar saman. Rúta fer þaðan kl. 14 að Auðartóftum. Eftir stutta helgistund verður gengið að Hvammskirkju. Þar verður einnig helgistund og gengið þaðan að Krosshólaborg, þar sem Landnáma segir að Auður hafi reist krossa og haft bænahald sitt. Gangan er í allt um 3 kílómetrar. Þegar göngu lýkur um kl. 15:30-16 verður helgistund með altarisgöngu á Krosshólaborg, sem allir eru velkomnir til, einnig þeir sem geta ekki farið í helgigönguna. Séra Gunnþór Ingason sérþjónustuprestur og séra Óskar Ingi Ingason sóknarprestur stýra helgistundunum. Gísli Helgason leikur í þeim írska og skoska tónlist á blokkflautu og Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur les brot úr skáldsögu sinni um Auði djúpúðgu þar sem segir frá kristnitöku hennar.
Þann 19. júní næstkomandi eru liðin 95 ár frá því að íslenskar konur, 40 ára og eldri, fengu kosningarétt og kjörgengi til alþingis. Því þótti vel við hæfi að heiðra minningu Auðar þennan dag. Þá er einnig nýliðinn messudagur heilags Kólumkilla sem telja má víst að hafi verið helsti dýrlingur kristinna landnámsmanna sem komu hingað frá Bretlandseyjum, og skammt undan eru sólstöður, sem gegndu stóru hlutverki í siðvenjum og trú Kelta.
Gangan er farin á vegum Starfshóps þjóðkirkjunnar um helgistaði á föruleiðum og Menningar- og ferðamálanefndar Dalabyggðar.
Upplýsingar veita Halla S. Steinólfsdóttir formaður Menningar- og ferðamálanefndar Dalabyggðar, (sími 434 1568), sr. Óskar Ingi Ingason, (sími 434 1639), Vilborg Davíðsdóttir (sími 695 0965) og sr. Gunnþór Ingason (sími 862 5877).
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei