Kveðjumessa sr. Óskars

DalabyggðFréttir

Kveðjumessa séra Óskars Inga verður í Hjarðarholtskirkju annan í hvítasunnu klukkan 14. Kaffi verður eftir athöfnina í Leifsbúð.
Sr. Óskar Ingi hefur verið prestur hér í Dölum síðastliðin 17 ár, en er nú á förum. Eins og flestum mun nú kunnugt hefur hann verið skipaður í embætti sóknarprests í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli frá 1. júní.
Auglýst verður síðar hver muni þjóna í prestakallinu þar til nýr prestur hefur verið ráðinn.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei