Kvenfélagið Fjóla kom færandi hendi

DalabyggðFréttir

Fulltrúar Kvenfélagsins Fjólu í Suðurdölum komu færandi hendi miðvikudaginn 3. júní sl. og afhentu Svanhvíti Lilju Viðarsdóttur aðstoðarleikskólastjóra í Auðarskóla höfðinglegan styrk frá félaginu að upphæð 250.000 kr.- til kaupa á leikföngum fyrir leikskólann. Er kvenfélagskonum færðar þakkir fyrir.

Á myndinni eru ásamt Svanhvíti Lilju, Erna Hjaltadóttir, Berglind Vésteinsdóttir og Guðlaug Kristinsdóttir frá Kvenfélaginu Fjólu.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei