Listaverk frá Kátadal

DalabyggðFréttir

Krakkarnir í Kátadal komu færandi hendi í íþróttamiðstöðina og afhentu glæsilegt listaverk sem þau höfðu unnið saman að á liðnum vetri. Verkið er afrakstur góðrar samvinnu og sköpunargleði barnanna. Verkið er unnið af: Ölbu Ingibjörgu Snævarsdóttur, Breka Frey Andrasyni, Eydísi Helgu Eyjólfsdóttur, Fanndísi Sölku Sindradóttur, Hákon Dengsa Jónssyni og Kötlu Dís Kristjánsdóttur og má sjá hluta þeirra á meðfylgjandi mynd. Ísak Sigfússon, lýðheilsufulltrúi, veitti verkinu viðtöku fyrir hönd Dalabyggðar. Listaverkið er einstaklega litríkt og mun án efa setja fallegan svip á íþróttamiðstöðina og gleðja bæði gesti og starfsfólk um ókomin ár.

Við þökkum krökkunum innilega fyrir þessa fallegu gjöf.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei