Kvennahlaup ÍSÍ

DalabyggðFréttir

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ 2020 fer fram 13. júní, 30 árum eftir að fyrsta kvennahlaupið var haldið.

Kvennahlaupið í Búðardal verður því 13. júní kl. 11.00.
Byrjum í Björgunarsveitarhúsinu, Vesturbraut 12, og hlaupum stóra hringinn í Búðardal.

Í ár verða ekki seldir bolir á hlaupastað en hægt er að panta þá með því að smella hér: PANTA BOL
Einnig er hægt að greiða þátttökugjaldið hjá tix.

Bolur+þáttökugjald
Fullorðnir 4.000 kr.         (stærðir: XS-XXL)
Börn 1.500 kr.                    (stærðir: 4-6, 7-8, 9-10, 11-12)

Þátttökugjald
Fullorðnir 1.500kr.
Börn 500kr.

Enginn posi á staðnum.
Við hvetjum þá sem kjósa að kaupa ekki bol í ár að endurnýta boli frá fyrri árum.

Líkt og fyrri ár verður frítt í sund á Laugum fyrir þátttakendur þennan dag.

Í ár er markmið hlaupsins að hvetja konur til þess að gera hlutina á eigin forsendum og nær sú hugsun langt út fyrir hlaupið og líkamsrækt.
Kvennahlaup nútímans snýst um hreyfingu sem hentar hverjum og einum, samveru kynslóðanna, líkamsvirðingu, sanngirni, umhverfismeðvitund og valdeflingu.
Einkunnarorð Sjóvá Kvennahlaups ÍSÍ 2020 eru „Hlaupum saman“.

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer sem fyrr segir fram þann 13. júní á yfir 80 stöðum á landinu og allir geta tekið þátt óháð aldri, þjóðerni eða kyni.

Nánari upplýsingar um alla hlaupastaði og tímasetningar birtast á www.kvennahlaup.is.

Í ljósi Covid–19 verða gerðar ráðstafanir um fjölda þar sem það á við og allar reglur virtar skilyrðislaust. Þátttakendur eru hvattir til að gera sínar eigin ráðstafanir og virða þessar aðstæður.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei