Kynningarfundur um Grunnmenntaskólann

DalabyggðFréttir

Kynningarfundur um Grunnmenntaskólann verður í Tjarnarlundi í Saurbæ fimmtudagskvöldið 28. október kl 20:30.
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi og Fræðslumiðstöð Vestfjarða standa sameiginlega að því að kynna Grunnmenntaskólann. Í kjölfar bættra samgangna á þessu svæði vilja aðilar hjá báðum miðstöðvum auka samvinnuna sem mun skila sér í bættri þjónustu í fullorðinsfræðslu fyrir íbúa á þessu svæði.
Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi og Kristín Sigurrós Einarsdóttir verkefnastjóri hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða mæta á fundinn og kynna þetta námsframboð.
Áformað er að Grunnmenntaskólinn geti að einhverju leyti hafist í nóvember og kennsla hefjist svo á fullu eftir áramót og verði áfram næstu tvær annir.
Athugið að Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi verður á ferðinni á svæðinu þennan dag og hægt er að panta viðtöl hjá honum í síma 899 0883
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei