Kynningarfundur um sáttatillögu ríkissáttasemjara

DalabyggðFréttir

Stéttarfélag Vesturlands boðar til kynningarfundar vegna atkvæðagreiðslu um sáttatillögu ríkssáttasemjara til lausnar kjaradeilu Stéttarfélags Vesturlands við Samtök atvinnulífsins og undirrituð var 20. febrúar 2014.
Um er að ræða félagsmenn í þeim deildum félagsins sem vinna eftir kjarasamningum Starfsgreinasambands Íslands (SGS) við Samtök atvinnulífsins, ekki þá sem eru í deildum Samiðnar eða LÍV, starfa eftir samningum ríkis- eða sveitarfélaga eða eftir sérsamningum við fyrirtæki eins og í stóriðjunni.
Fundurinn verður í Alþýðuhúsinu Sæunnargötu 2a, Borgarbyggð mánudaginn 3. mars kl. 20:00.
Forsvarsmenn félagsins eru tilbúnir að koma á vinnustaði og kynna tillöguna og samninginn sé þess óskað, vinsamlega hafið samband við formann félagsins í síma 894 9804 eða í gegnum netfangið signy @stettvest.is.
Kosið verður um sáttatillöguna með póstatkvæðagreiðslu og hafa kjörgögn verið send út. Atkvæði verða talin að morgni 7. mars og þurfa þau að hafa borist skrifstofu félagsins að Sæunnargötu 2a fyrir kl. 10:00 þann dag. Póststimpill gildir ekki.
Fái einhverjir félagsmenn sem telja sig hafa atkvæðisrétt, ekki send kjörgögn er þeim bent á að hafa samband við skrifstofuna í síma 430 0430, sem allra fyrst.
Hægt er að finna upplýsingar um sáttatillöguna og samninginn á heimasíðu félagsins www.stettvest.is.
Stjórn Stéttarfélags Vesturlands

Stéttarfélag Vesturlands

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei