Á Silfurtúni eru 13 íbúar og starfsmenn eru um 10. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið verður í störfin frá 24. ágúst eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar um störfin veitir Haflína Ingibjörg Hafliðadóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri, netfangið er haflina@dalir.is.
Umsóknarfrestur er til 4. ágúst. Umsóknir á að senda í tölvupósti á netfangið haflina@dalir.is.
Sjúkraliði
Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á Silfurtúni. Um er að ræða vaktavinnu í fullu starfi og/eða í hlutastarfi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og að vinna með öðru fólki. Leyfisbréf er skilyrði.
Starf við aðhlynningu
Laust er til umsóknar starf í aðhlynningu á Silfurtúni. Um er að ræða vaktavinnu í fullu starfi og/eða í hlutastarfi. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og að vinna með öðru fólki. Reynsla af aðhlynningu er æskileg.
Ræsting
Laust er til umsóknar starf í ræstingu á Silfurtúni. Um er að ræða 50% starf, vinnutíma er frá kl. 8 til 12. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og að vinna með öðru fólki. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt.
Leiðbeinandi í félagsstarfi
Laust er til umsóknar starf við félagstörf aldraðra á Silfurtúni. Um er að ræða 50% til 70% starf. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem á auðvelt með samskipti og að vinna með öðru fólki. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt og skapandi. Reynsla af svipuðu starfi er kostur.
Sjá einnig: Laus störf