Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins

DalabyggðFréttir

Málþing um eflingu sveitarstjórnarstigsins verður haldið föstudaginn 10. febrúar í Háskólanum á Akureyri klukkan 11:00 til 15:30. Málþingið er í samvinnu nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins, Innanríkisráðuneytisins og Háskólans á Akureyri.

Dagskrá

11:00

Ráðstefnugestir boðnir velkomnir: Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri.

11:05

Setning: Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra flytur ávarp.

11:20

Ávarp: Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

11:30

Frá starfi nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins: Þorleifur Gunnlaugsson, formaður.

11:45

Niðurstöður könnunar um viðhorf sveitarstjórnarmanna og alþingismanna til eflingar sveitarstjórnarstigsins: Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri.

12:30

Léttur hádegisverður

13:00

Sveitarstjórnarstigið – staða, horfur og áskoranir:
Eva Einarsdóttir, borgarfulltrúi í Reykjavík,
Eva Sigurbjörnsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Árneshreppi,
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ
Ólína Þorvarðardóttir, alþingismaður og varaformaður Umverfis- og samgöngunefndar
Sigurborg Kr. Hannesdóttir, forseti bæjarstjórnar Grundarfjarðar.

14.00

Pallborðsumræður undir stjórn Ragnhildar Hjaltadóttur, ráðuneytistjóra í innanríkisráðuneytinu: Albertína F. Elíasdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar og formaður Fjórðungsambands Vestfirðinga, Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Fjarðabyggð, Eiríkur B. Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri, Grétar Þór Eyþórsson, prófessor, Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri skrifstofu mannréttinda og sveitarfélaga í innanríkisráðuneytinu og Ragnheiður Hergeirsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Árborg og varaformaður nefndar um eflingu sveitarstjórnarstigsins.

15:20

Lokaorð; Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.

15:30

Málþingi slitið.


Fundarstjóri verður Elín R Líndal, sveitarsjórnarfulltrúi í Húnaþingi vestra.
Tilkynna skal þátttöku með tölvupósti á netfangið arny.g.olafsdottir@irr.is.
Þeir sem ekki eiga heimangengt geta fylgst með dagskránni á netinu og verða nánari upplýsingar veittar síðar.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei