Leigufélagið Bríet og Dalabyggð óska eftir byggingaraðilum til að taka þátt í uppbyggingu íbúða

DalabyggðFréttir

Leigufélagið Bríet stefnir á uppbyggingu á hagkvæmum leiguíbúðum í Búðardal og auglýsir því eftir byggingaraðilum til samstarfs.

Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið og Leigufélagið Bríeti.

Gögn fyrir samstarfsaðila er hægt að nálgast með að senda tölvupóst á soffia@briet.is og skal gögnum skilað fyrir mánudaginn 21. desember 2020.

Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæði lausna.

Nánari upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir framkvæmdarstjóri Bríetar (soffia@briet.is) og Elmar Erlendsson (elmar.erlendsson@hms.is).

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei