Leitað eftir stuðningsfjölskyldum

DalabyggðFréttir

Félagsþjónustan leitar eftir fjölskyldum sem eru tilbúnar að gerast stuðningsfjölskyldur.

Hlutverk stuðningsfjölskyldna felst í því að taka barn/börn inn á heimilið í stuttan tíma, að jafnaði eina helgi í mánuði. Um er að ræða börn með fötlun eða börn sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður.

Við leitum að einstaklingum sem eru færir um að skapa öruggar aðstæður með hlýju og nærgætni en skýrum mörkum.

Nánari upplýsingar veitir Sylvía Ósk Rodriguez, verkefnastjóri í málefnum fatlaðs fólks, í síma síma 433-7100 eða sylvia.rodriguez@borgarbyggd.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei