Lokahóf UDN í frjálsum íþróttum og fótbolta

DalabyggðFréttir

Lokahóf UDN í frjálsum íþróttum og fótbolta verður haldið við Íþróttahúsið á Reykhólum fimmtudaginn 11. september, klukkan 19.
Þetta er uppgjör sumarsins og verða m.a. veittar viðurkenningar fyrir góða mætingu á æfingar og mót, þátttökuverðlaun fyrir mætingu á kvöldmót, viðurkenningar fyrir besta afrek karla og besta afrek kvenna í sumar, viðurkenning fyrir mestar framfarir milli ára og allir fá plagg með árangri ársins í hinum ýmsu greinum samanborið við árið frá í fyrra.
Grillið verður heitt og hver og einn sér um mat fyrir sig og sína. Leikir og fjör, spjall, kaffi/te og kósýheit.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei