Markaskrá Dalasýslu 2012

DalabyggðFréttir

Ný markaskrá fyrir Dalasýslu hefur verið gefin út, en í ár eru gefnar út nýjar markaskrár fyrir allt landið.
Í markaskránni eru skráð 719 eyrnamörk og 69 brennimörk. Eigendur marka eru vel á fjórða hundraðið, velflestir skráðir fyrir einu marki, en allt upp í 10 mörk.
Til samanburðar má geta þess að í Markaskrá Dalasýslu 1951 voru skráð 1350 eyrnamörk og markeigendur 896. Er það því til muna auðveldara í dag að leggja stund á þá þjóðlegu íþrótt að kunna öll mörk.
Í skránni eru og birtar ýmsar fróðlegar upplýsingar fyrir áhugasama, eins og fastnúmeraröð hrossaræktenda, markheiti, fjallskilasamþykkt Dalabyggðar og fleira.
Markaskrá má nálgast hjá markaverði, Erlu Ólafsdóttur í Ásgarði. Markeigendur hafa þegar greitt fyrir markaskrá og munu fá hana afhenta næstu daga. Marklausir geta keypt sér eintak hjá markaverði og kostar hún þá 2.500 kr.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei