Matvælastofnun biður um tilkynningar um dauða villta fugla

DalabyggðFréttir

Matvælastofnun vekur athygli á að stofnunin óskar eftir tilkynningum ef villtir dauðir fuglar finnast í sveitarfélaginu, nema augljóst sé að þeir hafi drepist af slysförum.

Tilgangurinn er að skima þá fyrir fuglaflensu og fylgjast þannig með mögulegri útbreiðslu hennar meðal farfugla hérlendis.

Best er að tilkynna með því að skrá ábendingu á vef stofnunarinnar, en líka er hægt að hringja í síma 530-4800 á opnunartíma eða senda tölvupóst á netfangið mast@mast.is.

Þau afbrigði fuglaflensuveiru sem nú herja á fugla eru ekki bráðsmitandi fyrir fólk en þó er ráðlegt að gæta almennra smitvarna, snerta ekki dauða fugla með berum höndum og tilkynna tafarlaust um fundinn.

Frétt MAST um aukið viðbúnaðarstig.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei