Námskeið í tæknilæsi fyrir 60+

DalabyggðFréttir

Námskeiðin, sem kostuð eru af félags- og vinnumálaráðuneytinu eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Þetta er liður í átaki ráðuneytisins um eflingu tæknilæsis hjá fólki sextíu ára og eldra um allt land.

Eftir námskeiðið eiga þátttakendur að hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Rafrænum skilríkjum og notkun þeirra
  • Heimabanka og stafrænum viðskiptum
  • Netöryggi
  • Samfélagsmiðlum og efnisveitum
  • Notkun tölvupósts, forrita, smáforrita og netleitar

 

Námskeiðin eru haldin í fjórum hlutum, hver hluti tekur tvær klukkustundir.

 

Námskeið í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal 2022:

Mánudaginn 29.ágúst

Þriðjudaginn 30.ágúst

Mánudaginn 5.september

Þriðjudaginn 6.september

Kennt er alla dagana kl. 17:00-19:00

 

Athugið! Þetta er eina námskeiðið sem haldið verður í Dalasýslu þetta árið.

Kennari: Ívar Örn Reynisson.

Skráning hjá kennara í síma 6952579 og ivar.orn73@gmail.com

Hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiðið er 8 manns. Tímasetningar á námskeiðum eru með fyrirvara um næga þátttöku.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei