Nýr hjólarampur og vígsla á vorhátíð

DalabyggðFréttir

Þann 3. júní síðastliðinn var nýr hjólarampur afhentur Ungmennafélaginu Ólafi Pá sem félagið hafði fest kaup á. Verkefnið var unnið að frumkvæði Stefaníu Bjargar Jónsdóttur og hlaut verkefnið styrk frá Rannís sem gerði kaupin möguleg. Verkefnið er unnið í samstarfi við Dalabyggð sem leggur til svæði undir rampinn við skólann. Um þessar mundir er unnið að hönnun skólalóðarinnar og verður endanleg staðsetning rampsins ákveðin í tengslum við þá vinnu.

Hjólarampurinn var vígður á vorhátíð Auðarskóla af þeim félögum í BMX Brós, sem jafnframt hönnuðu og smíðuðu rampinn. BMX Brós héldu stórskemmtilega sýningu í boði foreldrafélags Auðarskóla að gefnu tilefni. Að sýningu lokinni fengu börnin tækifæri til að spreyta sig á rampinum. Að sögn formanns Umf. Ólafs Pá hefur hann vakið mikla lukku og vonast til að hann verði vel nýttur og stuðli að aukinni hreyfingu og útivist í samfélaginu.

Meðfylgjandi myndir eru frá Fjólu Mikaelsdóttur, formanni foreldrafélags Auðarskóla.

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei