Nýr sóknarprestur Dalabyggð 25. september, 2012Fréttir Séra Anna Eiríksdóttir er nýr sóknarprestur í Dalaprestakalli. Hún verður sett í embætti í Hjarðarholtskirkju sunnudaginn 30. september kl. 14:00. Séra Þorbjörn Hlynur Árnason sér um athöfnina. Kirkjugestum er boðið upp á kaffiveitingar í Leifsbúð að athöfn lokinni. Skrifstofa sóknarprests Dalaprestakalls er í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal, annarri hæð, til vinstri. Netfangið er anna.eiriksdottir@kirkjan.is og síminn 434 1639 / 897 4724. Dalaprestakall Var efni síðunnar hjálplegt? JáNei