Undanfarna mánuði hefur staðið yfir undirbúningur að stofnun Nýsköpunarnets Vesturlands (NÝVEST). Markmiðið með stofnun netsins er að tengja saman alla sem vilja vinna að nýsköpun á Vesturlandi, fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga.
Dagana 13, 15 og 16. september verður farið vítt og breytt um Vesturland til að kynna hugmyndina að stofnun NÝVEST.
Kynningarfundir verða á eftirtöldum stöðum:
| Akranes | Breið (HB húsið) | mánudagur | 13. september kl. 12:00 |
| Búðardalur | Vínlandssetrið | miðvikudagur | 15. september kl. 12:00 |
| Borgnarnes | Hjálmaklettur (MB) | miðvikudagur | 15. september kl. 16:00 |
| Hellissandur | Röstin | fimmtudagur | 16. september kl. 12:00 |
| Stykkishólmur | Árnasetur | fimmtudagur | 16. september kl. 12:00 |
| Grundarfjörður | Sögumiðstöðin | fimmtudagur | 16. september kl. 16:00 |
Þeir sem hafa áhuga á nýsköpun á Vesturlandi eru hvattir til að mæta á fundina, allir velkomnir!
