Ólafsdalshátíð laugardaginn 6. ágúst

DalabyggðFréttir

Árleg Ólafsdalshátíð verður haldin laugardaginn 6. ágúst. Aðgangur er ókeypis og fjölbreytt dagskrá í boði. Hátíðardagskrá, Ómar Ragnarsson, Lína langsokkur og margt fleira.
Kl. 11:00-12:20 Ferð með nýuppgerðu rútunni Soffíu II (Bedford árgerð 1940) í kringum Gilsfjörð. Leiðsögumaður: Sveinn Ragnarsson á Svarfhóli í Reykhólasveit. Mæting kl. 10.45.
Kl. 11:00. Sala á miðum í Ólafsdalshappdrættinu hefst. 1. vinningur: flugmiðar fyrir tvo að eigin vali til Evrópu með Icelandair. Fjöldi annarra góðra vinninga. Miðaverð 500 kr.
Kl. 12:00-17.00 Ólafsdalsmarkaður, grænmeti og sýningar í skólahúsinu. Lífrænt vottað Ólafsdalsgrænmeti, Erpsstaðaís, kræklingur frá Nesskel. Fjölbreyttur matar- og handverksmarkaður. Ólafsdalsskólinn 1880-1907: fastasýning á 1. hæð. Dalablóð: málverkasýning Guðrúnar Tryggvadóttur á 2. hæð.
Kl. 13.00 Hátíðardagskrá
Kynnir: Ómar Ragnarsson, skemmtikraftur með meiru.
Erindi: Þorsteinn Sæmundsson, alþingismaður og fyrrverandi kaupfélagsstjóri Kaupfélags Saurbæinga.
Tónlist: Drengjakór íslenska lýðveldisins.
Erindi: Dalablóð; sýning um formæður mínar úr Dölunum: Guðrún Tryggvadóttir, listakona.
Erindi: Grasið og ljárinn; hugleiðingar um ættboga Ólafsdalshjóna: Sr. Gunnar Kristjánsson, prófessor emerítus.
Gamanmál: Ómar Ragnarsson.
Tónlist: Drengjakór íslenska lýðveldisins.
Leiklist: Lína langsokkur (Ágústa Eva Erlendsdóttir) skemmtir börnum 0-99 ára og gefur sér tíma með þeim.
16.30 Dregið í Ólafsdalshappdrættinu. Hestar teymdir undir börnum. Rútan Soffía II og önnur virðuleg farartæki til sýnis. Kaffi, djús, kleinur og flatkökur á sanngjörnu verði.
Gott er að hafa í huga að netsamband er stopult í Ólafsdal og því er gestum ráðlagt að hafa með sér lausafé til að versla og taka þátt í happdrætti.
Allir eru velkomnir í Ólafsdal á laugardaginn.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei