Ólafsdalur

DalabyggðFréttir

Í Ólafsdal verður opið alla daga kl. 12-17 frá 27. júní til 16. ágúst. Umsjónarmenn verða hjónin Elfa Stefánsdóttir tómstundafræðingur og Haraldur Baldursson tæknifræðingur.
Sýningar eru þar um sögu Ólafsdalsskólans, konurnar í Ólafsdal o.fl., en auk þess er skólahúsið sjálft frá 1896 er fallegt og skoðunarvert.
Í sumar verður þar boðið upp á kaffi, rjómavöfflur og ís frá Rjómabúinu á Erpsstöðum. Einnig geta gestir fræðst um lífræna rækun grænmetis í Ólafsdal og keypt það á staðnum. Fræðslustígur er í Ólafsdal og góðar gönguleiðir í fallegum umhverfi.

Ólafsdalshátíð verður að þessu sinni haldin laugardaginn 8. ágúst. Verður dagskráin fjölbreytt og fjölskylduvæn að vanda; tónlistaratriði, skemmtun fyrir börnin, áhugaverð erindi, vandaður handverksmarkaður og veitingar. Þá verður lífrænt vottað Ólafsdalsgrænmeti til sölu og Ólafsdalshappdrætti.
Ólafsdalur er merkur sögu- og minjastaður við sunnanverðan Gilsfjörð, um 6 km frá veginum yfir Gilsfjarðarbrúna. Þar var fyrsti búnaðarskóli Íslands stofnaður af frumkvöðlinum Torfa Bjarnasyni árið 1880, fyrir 135 árum. Auk þess er nú 100 ártíð Torfa (d. 1915).

Ólafsdalsfélagið

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei