Fimmtudaginn 1. júní var úthlutað úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs og var úthlutunarhátíðin haldin í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar í Búðardal.
DalaAuður er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Dalabyggðar og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og er eitt af verkefnum undir hatti brothættra byggða. Verkefnið hófst í mars á síðasta ári.
Frumkvæðissjóður DalaAuðs styrkir bæði samfélagseflandi verkefni og nýsköpun í Dalabyggð. Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs og voru 12.250.000 krónur til úthlutunar að þessu sinni.
21 verkefni hlutu styrk. Mynd af styrkhöfum með verkefnastjóra DalaAuðs má sjá hér að ofan en lista yfir styrkþega hér fyrir neðan.
Það er gífurlega ánægjulegt að sjá hve mikil gróska er í Dalabyggð en aðeins er rúmt hálft ár frá síðustu úthlutun en þá hlutu 21 verkefni einnig styrk.
Verður spennandi að fylgjast með framgöngu þeirra allra á næstu mánuðum.
Eftirtaldin verkefni hlutu styrk úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs árið 2023:
- Verkefnið Myndlistarnámskeið í Búðardal
Sigrún Margrét Halldórsdóttir
200.000 kr.
- Dala stúlka – Valley girl
Jasa Baka og Kristján E. Karlsson
200.000 kr
- Hljómbrot – tónleikar
Sönghópurinn Hljómbrot.
250.000 kr
- Gróðurhús að Laugum
Bax ehf
250.000 kr í styrk.
- Ræktun aspargræðlinga
Konráð Lúðvíksson
250.000 kr
- Stígur milli Hrútsstaða og Haukadals
Ungmennafélagið Ólafur Pá og Hestamannafélagið Glaður
300.000 kr
- Lífið á Laugum – heimasíða
Sigrún Hanna Sigurðardóttir og Kristín Björk Jónsdóttir
300.000 kr
- Er líða fer að jólum 2023.
Alexandra Rut Jónsdóttir
300.000 kr
- Aðgengi að heilsueflandi húsnæði í Búðardal
Ungmennafélagið Ólafur Pá
400.000 kr
- Fræhöll í Búðardal
Dalirnir heilla ehf.
500.000 kr
- Aðgengi skóga í Dalabyggð
Skógræktarfélag Dalasýslu
500.000 kr
- Gönguleið Fellsströnd – Skarðsströnd
Guðmundur Halldórsson og Trausti Bjarnason
500.000 kr
- Vöruþróun á nautakjöti
Skúli Hreinn Guðbjörnsson
500.000 kr
- Road Refill í Búðardal
Iceland up close ehf
500.000 kr
- Jarðhýsi á Eiríksstöðum.
Iceland up close ehf
700.000 kr
- Dalahvítlaukur
Svarthamar Vestur ehf.
800.000 kr
- Beint frá skýli
Skugga-Sveinn ehf
800.000 kr
- Áfangaheimilið á Dunki
Berghildur Pálmadóttir og Kári Gunnarsson
900.000 kr
- Grafíkverkstæði og sýningarhald
Penna sf
1.100.000 kr
- Ullarvinnsla í Dölum
Rauðbarði ehf
1.500.000 kr
- Jólasveinarnir eru úr Dölunum
Kruss ehf
1.500.000 kr
Að loknum styrkveitingum voru þrjár kynningar á verkefnum sem hlutu styrk að þessu sinni. Það voru þau verkefnin Aðgengi skóga í Dalabyggð sem Jakob Kristjánsson kynnti, Road Refill í Búðardal sem Bjarnheiður Jóhannsdóttir kynnti og loks Jólasveinarnir eru úr Dölunum sem Þorgrímur Einar Guðbjartsson kynnti.
Að kynningum loknum hélt Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar tölu. Bjarki fagnaði þeirri miklu grósku sem er að eiga sér stað í Dalabyggð og óskaði styrkhöfum til hamingju með verkefnin sem eru bæði fjölbreytt og áhugaverð. Þá þakkaði hann Lindu fyrir að halda vel utan um DalaAuð og bauð svo gestum að þiggja veitingar að dagskrá lokinni.
Sjá frétt frá 4. nóvember 2022: Fyrsta úthlutun úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs