Önnur úthlutun úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs

DalabyggðFréttir

Fimmtudaginn 1. júní var úthlutað úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs og var úthlutunarhátíðin haldin í Nýsköpunarsetri Dalabyggðar í Búðardal.

DalaAuður er samstarfsverkefni Byggðastofnunar, Dalabyggðar og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og er eitt af verkefnum undir hatti brothættra byggða. Verkefnið hófst í mars á síðasta ári.

Frumkvæðissjóður DalaAuðs styrkir bæði samfélagseflandi verkefni og nýsköpun í Dalabyggð. Þetta er í annað sinn sem úthlutað er úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs og voru 12.250.000 krónur til úthlutunar að þessu sinni.
21 verkefni hlutu styrk. Mynd af styrkhöfum með verkefnastjóra DalaAuðs má sjá hér að ofan en lista yfir styrkþega hér fyrir neðan.

Linda Guðmundsdóttir, verkefnastjóri DalaAuðs býður gesti velkomna

Það er gífurlega ánægjulegt að sjá hve mikil gróska er í Dalabyggð en aðeins er rúmt hálft ár frá síðustu úthlutun en þá hlutu 21 verkefni einnig styrk.

Verður spennandi að fylgjast með framgöngu þeirra allra á næstu mánuðum. 

Gestir hlýða á ávarp verkefnastjóra áður en úthlutun hefst

Eftirtaldin verkefni hlutu styrk úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs árið 2023:

  • Verkefnið Myndlistarnámskeið í Búðardal
    Sigrún Margrét Halldórsdóttir

    200.000 kr.
  • Dala stúlka – Valley girl
    Jasa Baka og Kristján E. Karlsson

    200.000 kr
  • Hljómbrot – tónleikar
    Sönghópurinn Hljómbrot.

    250.000 kr
  • Gróðurhús að Laugum
    Bax ehf

    250.000 kr í styrk.
  • Ræktun aspargræðlinga
    Konráð Lúðvíksson

    250.000 kr
  • Stígur milli Hrútsstaða og Haukadals
    Ungmennafélagið Ólafur Pá og Hestamannafélagið Glaður

    300.000 kr
  • Lífið á Laugum – heimasíða
    Sigrún Hanna Sigurðardóttir og Kristín Björk Jónsdóttir

    300.000 kr
  • Er líða fer að jólum 2023.
    Alexandra Rut Jónsdóttir

    300.000 kr
  • Aðgengi að heilsueflandi húsnæði í Búðardal
    Ungmennafélagið Ólafur Pá

    400.000 kr 
  • Fræhöll í Búðardal
    Dalirnir heilla ehf.

    500.000 kr
  • Aðgengi skóga í Dalabyggð
    Skógræktarfélag Dalasýslu

    500.000 kr
  • Gönguleið Fellsströnd – Skarðsströnd
    Guðmundur Halldórsson og Trausti Bjarnason

    500.000 kr
  • Vöruþróun á nautakjöti
    Skúli Hreinn Guðbjörnsson

    500.000 kr
  • Road Refill í Búðardal
    Iceland up close ehf

    500.000 kr
  • Jarðhýsi á Eiríksstöðum.
    Iceland up close ehf

    700.000 kr
  • Dalahvítlaukur
    Svarthamar Vestur ehf.

    800.000 kr
  • Beint frá skýli
    Skugga-Sveinn ehf

    800.000 kr
  • Áfangaheimilið á Dunki
    Berghildur Pálmadóttir og Kári Gunnarsson

    900.000 kr
  • Grafíkverkstæði og sýningarhald
    Penna sf

    1.100.000 kr
  • Ullarvinnsla í Dölum
    Rauðbarði ehf

    1.500.000 kr
  • Jólasveinarnir eru úr Dölunum
    Kruss ehf

    1.500.000 kr

Að loknum styrkveitingum voru þrjár kynningar á verkefnum sem hlutu styrk að þessu sinni. Það voru þau verkefnin Aðgengi skóga í Dalabyggð sem Jakob Kristjánsson kynnti, Road Refill í Búðardal sem Bjarnheiður Jóhannsdóttir kynnti og loks Jólasveinarnir eru úr Dölunum sem Þorgrímur Einar Guðbjartsson kynnti.


Að kynningum loknum hélt Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri Dalabyggðar tölu. Bjarki fagnaði þeirri miklu grósku sem er að eiga sér stað í Dalabyggð og óskaði styrkhöfum til hamingju með verkefnin sem eru bæði fjölbreytt og áhugaverð. Þá þakkaði hann Lindu fyrir að halda vel utan um DalaAuð og bauð svo gestum að þiggja veitingar að dagskrá lokinni.

Björn Bjarki Þorsteinsson, sveitarstjóri Dalabyggðar ávarpar gesti.

Veitingum voru gerð góð skil og gafst fínt tækifæri til að spjalla saman að dagskrá lokinni.

 

Sjá frétt frá 4. nóvember 2022: Fyrsta úthlutun úr Frumkvæðissjóði DalaAuðs

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei