Opinn fundur um sveitarstjórnarmál

DalabyggðFréttir

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Samband íslenskara sveitarfélaga og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) boða til sameiginlegs kynningarfundar um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið, í Menntaskóla Borgarfjarðar miðvikudaginn 3. febrúar kl. 17.
Fundurinn er haldinn í kjölfar þess að nýlega undirrituðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga yfirlýsingu um að skipa samstarfsnefnd til að ræða og meta sameiningarkosti sveitarfélaga í hverjum landshluta. Nefndin skal kynna sér stöðu mála í einstökum landshlutum og viðhorf sveitarstjórnarmanna og almennings til sameiningar.

Að því loknu skal hún leggja fram drög um sameiningarkosti í hverjum landshluta og verði þau lögð fyrir landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2010 til umræðu og álits. Að því loknu mun ráðherra leggja fyrir Alþingi áætlun um sameiningar sveitarfélaga til ársins 2014 sem byggist á umræðum og áliti landsþingsins.

Sameiningarnefnd ráðherra og Sambands íslenskra sveitarfélaga mun leggja áherslu á að sameining sveitarfélaga geti skapað betri forsendur fyrir frekari verkefnaflutningi frá ríki til sveitarfélaga, fyrir frekari breytingum á tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga, og gert sveitarfélögum betur kleift að standa undir þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra, svo sem varðandi íbúaþjónustu, stjórnsýslu, fjármál og ábyrgð.

Nefndin mun einnig meta fyrir hvert landssvæði hvaða aðrar aðgerðir gætu falið í sér frekari styrkingu viðkomandi sveitarfélaga í kjölfar sameiningar, svo sem varðandi breytta verkaskiptingu milli ríkis og viðkomandi sveitarfélaga, úrbætur á sviði samgöngu- og fjarskiptamála, nýjar leiðir í uppbyggingu stjórnsýslu og grenndarlýðræðis, úrbætur á sviði félags- fræðslu- og menningarmála, og stuðla að því að nýlegar aðgerðir og áætlanir á sviði atvinnu- og byggðamála skili sér til sveitarfélaganna.

Dagskrá fundarins er hér á eftir.

Dagskrá:
Kristján L. Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, ávarp.

Kristinn Jónasson, bæjarstjóri í Snæfellsbæ. Reynsla af sameinuðu sveitarfélagi á Vesturlandi.

Páll Brynjarsson, formaður SSV. Staða sameiningarmála á Vesturlandi.

Flosi Eiríksson, formaður samstarfsnefndar, kynning á verkefninu: “Nýjar leiðir í eflingu sveitarstjórnarstigsins”.

Sigurður Tómas Björgvinsson, ráðgjafi sameiningarnefndar: „Lærum af reynslunni – nýjar áherslur í sameiningarmálum“.

Athugið að fundurinn er opinn.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei