Opnað fyrir umsóknir um framlög vegna verslana í dreifbýli

DalabyggðFréttir

Innviðaráðherra auglýsir eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð A.9 Verslun í dreifbýli.

Markmiðið er að styðja við rekstur dagvöruverslana í minni byggðarlögum fjarri stórum byggðakjörnum til að viðhalda mikilvægri grunnþjónustu. Annars vegar er hægt að sækja um rekstrarstyrk og hins vegar styrk til búnaðarkaupa.

Allt að 30 milljónum kr. verður veitt vegna áranna 2022 og 2023. Umsækjendur skulu taka mið af úthlutunarreglum innviðaráðherra og auglýsingu um styrkina. Sjá tengla hér að neðan.

Umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudagsins 16. október 2022.

Frekari upplýsingar og umsóknareyðublað má finna á vef Byggðastofnunar.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei