Á næstu vikum er gert ráð fyrir að einstaklingar sem tilheyra eftirtöldum hópum geti fengið bólusetningu með bóluefni frá Pfizer hjá HVE Búðardal og HVE Hólmavík:
- Þau sem áður hafa fengið eina sprautu af Janssen bóluefni. að þau sem eru með mótefni eftir covid-19 sýkingu og hafa fengið Janssen örvunarskammt þurfa ekki að mæta í annan örvunarskammt.
- 60 ára og eldri sem fengu seinni bólusetningu fyrir 6 mánuðum eða meira
- Börn á aldrinum 12-15 ára. Forráðamaður sem óskar eftir bólusetningu fyrir barn sitt þarf að fylgja barni í bólusetningu.
- Um er að ræða árganga 2006, 2007, 2008 og börn sem fædd eru í janúar til september/október 2009 (börn sem orðin eru 12 ára).
- Óbólusettir og þau sem eiga eftir að klára grunnbólusetningu eru einnig velkomin.
Gert er ráð fyrir að bólusett verði eftirfarandi daga á næstu vikum:
- Búðardalur – 2. september / 23. september / 21. október
- Hólmavík – 16. september / 14. október
Bendum á að velkomið er að mæta á hvern þann stað innan HVE sem hentar þegar verið er að bólusetja en athugið að á minni stöðum getur þurft að panta bólusetningu með fyrirvara.
Allir sem óska eftir bólusetningu í Búðardal eða á Hólmavík þurfa að skrá sig í síðasta lagi fyrir hádegi daginn fyrir bólusetningu í síma 432 1450 Búðardalur / 432 1400 Hólmavík