25.03.2024
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Sælingsdalstungu í Dalabyggð
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi 19. mars 2024 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Sælingsdalstungu skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér sameiningu frístundahúslóða nr. 52-57 í eina 4 ha lóð. Skilmálum um byggingarmagn á öllum frístundahúsalóðum er breytt og gert ráð fyrir breyttum aðkomuvegi inn á svæðið. Tillagan er aðgengileg í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar
Skoða betur







