Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur staðfest Reglur um stuðning í húsnæðismálum. Þetta er gert í samræmi við breytingar sem voru gerðar á 45. grein laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, en þær gera sveitarfélögum skylt að veita sérstakan húsnæðisstuðning í stað sérstakra húsaleigubóta.
Í reglunum er einnig kveðið á um sérstakan stuðning vegna 15 – 17 ára leigjenda á heimavistum, námsgörðum eða almennum markaði.
Reglurnar koma í stað eldri reglna um sérstakar húsaleigubætur frá 2014.

Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning í Dalabyggð

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei