Réttindi fatlaðra

DalabyggðFréttir

Opinn fundur um réttindi fatlaðs fólks og fjölskyldna barna með sérþarfir verður haldinn í félagsheimilinu á Hólmavík mánudaginn 26. ágúst 2013 kl. 17.
Starfsmaður réttindavaktar Velferðarráðuneytisins, réttindagæslumaður fatlaðs fólks og ráðgjafi frá Sjónarhóli, ráðgjafamiðstöð fyrir foreldra barna með sérþarfir, flytja erindi og svara fyrirspurnum.

Dagskrá

1. Þjónusta við fatlað fólk á heimilum sínum.
2. Réttindagæslan og ráðstafanir til að draga úr nauðung í þjónustu við fatlað fólk.
3. Hlutverk Sjónarhóls.
4. Umræður og spurningar.
Allir eru velkomnir.
Jón Þorsteinn, réttindagæslumaður fatlaðs fólks á Vestfjörðum og Vesturlandi og Ragna Þóra, ráðgjafi hjá Sjónarhóli
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei