Rokkhátíðin Slátur – Haustfagnaður sauðfjárbænda í Dölum

DalabyggðFréttir

Föstudaginn 23. október nk. verður rokkað í Dölunum. Þar koma saman í nýju Reiðhöllinni í Búðardal nokkrar af ferskustu og skemmtilegustu hljómsveitunum á Íslandi í dag. Gleðin hefst kl. 20 og stendur svo lengi sem þarf. Það kostar ekkert inn en dagskipanin er að skemmta sér og vera glaður.

Hljómsveitirnar sem halda uppi stuðinu eru:

Dr. Gunni, Retro Stefson, FM Belfast, Rass, Agent Fresco, Reykjavík!, Grjóthrun í Hólshreppi og Black Sheep
(allar hljómsveitir fá greitt í dilkum og sviðakjömmum eins og hver maður torgar).
Frábær tónlist, gleði, kjöt og stuð! Já, og það skal ítrekað:

Það kostar ekkert inn


og rúsínan í pylsuendanum er frábær dagskrá alla helgina í tengslum við Haustfagnaðinn:
Hrútasýning, hagyrðingakvöld, sviðaveisla, knattspyrnumót, Íslandsmeistaramótið í rúningi o.fl. o.fl.

Guðrúnarlaug að Laugum í Sælingsdal opnar síðan aftur fyrir almenning. Laugin var síðast notuð í kringum 1870 en lenti þá í grjóthruni og hefur ekki til hennar spurst síðan, þar til nú. Það verður að teljast merkilegt að hún opni aftur 140 árum síðar!

Komdu í Dalina, baðaðu þig í Guðrúnarlaug, skoðaðu hrúta
og taktu Slátur!
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei