Rotþróahreinsun 2020

DalabyggðFréttir

Í Dalabyggð eru rotþrær hreinsaðar á þriggja ára fresti. 2020 mun hreinsun fara fram í Hörðudal, Miðdölum og Haukadal og hefst verkið 24.ágúst, áætlað er að því ljúki á tveimur vikum. Kostnaður við rotþróahreinsun er innheimtur með fasteignagjöldum.

Dalabyggð vill brýna fyrir fólki að hafa allt klárt fyrir rotþróahreinsun s.s. gæta að merkingum rotþróa t.d. með veifum og auðvelda aðgengi að rotþróm. Þá þarf að koma upplýsingum um hlið eða aðrar hindranir til Viðars í síma 894-0013 sem fyrst, eða hafa hlið opin á meðan á hreinsun stendur.

Það er fyrirtækið Verkval sem sér um rotþróahreinsun í Dalabyggð árið 2020.

Ef einhver sem ekki er á þessu svæði er með rotþró sem þarfnast hreinsunar þá er viðkomandi beðinn um að láta vita á skrifstofu Dalabyggðar. Athugið að hreinsanir sem eru utan þess svæðis sem er á áætlun viðkomandi árs geta haft í för aukakostnað fyrir eiganda.

Ef rotþróin er stífluð hafið samband við fagaðila (pípara) til að greina vandann sem er yfirleitt ekki út af því að rotþróin sé full.

Hreinsun næstu ára:
2021 – Laxárdalur, Saurbær og Skarðsströnd
2022 – Hvammssveit, Fellsströnd og Skógarströnd

Íbúar Dalabyggðar eru beðnir um að gæta að því lyf, plastúrgangur, blautþurrkur, eyrnapinnar og önnur skaðleg efni rati ekki í rotþrær.

Upplýsingar um fráveitumál, þar á meðal rotþrær og siturlagnir má nálgast á vef Umhverfisstofnunar eða með því að smella HÉR.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei