Sauðafellshlaupið 2018

DalabyggðFréttir

Föstudagskvöldið 8. júní stendur Rjómabúið á Erpsstöðum fyrir fimmta Sauðafellshlaupinu. Hlaupið hefst og endar við brúsapallinn á Erpsstöðum.

Hlaupið er eftir þjóðvegi 60 að Fellsenda og upp veg 585, á Fellsendabrekkunni er stefnan tekin uppá Sauðafellið, það hlaupið þvert og niður að bænum Sauðafelli, og komið að þjóðvegi 60 á ný og þá er hringnum lokað er komið er að Erpsstöðum á ný. Hlaupaleiðin er um 12 km. Þetta er skemmtileg leið, ekki mjög erfið þó helmingur hennar sé utanvegar eða eftir slóðum, útsýni er fallegt yfir sveitina og út Hvammsfjörðinn.

Þeir sem vilja frekar hlaupa eftir vegi, geta tekið hringinn eftir þjóðvegunum 60 og 585, þá skiljast leiðir hlaupara við Fellsenda, sú leið er um 15 km.

Það verður ein drykkjarstöð á leiðinni, við bæinn Fellsenda.

Boðið verður uppá barnagæslu á Erpsstöðum meðan á hlaupinu stendur, leikir og dýrin á bænum skoðuð, skrá þarf í gæsluna.

Eftir hlaupið er býður Rjómabúið Erpsstaðir uppá kaffi og rjómaís! Allir fá heimagerðan orkudrykk er þeir koma á endastöð- ískalda skyrmysu og/eða rabbabaramysu.

Árið 2014 tóku 40 þátt, 2015 voru það 32, 2016 voru það 21 og 2017 voru það 24. Hlaupandi eða gangandi hver á sínum hraða. Yngsti þátttakandinn sem hefur tekið þátt er 9 ára og elsti 74 ára. Þetta er tímalaust hlaup, og hver tekur tíma á sér ef hann vill. Þó ber að geta fyrir þá sem vilja slá met, að Strandamaðurinn Birkir Þór Stefánsson í Tröllatungu hljóp hringinn á 58 mínútum árið 2017.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei