Sjálfboðaliðaverkefni 2022

DalabyggðFréttir

Umsóknarfrestur um sjálfboðavinnuverkefni Dalabyggðar er til 6. maí.

Byggðarráð afgreiðir umsóknir. Íbúar eru hvattir til að nýta sér þetta til að hrinda í framkvæmd brýnum umhverfisverkefnum í sínu næsta nágrenni.

Almenn skilyrði fyrir úthlutun framlaga eru að umsækjandi eigi lögheimili í Dalabyggð, sé ekki í vanskilum við sveitarfélagið og að umsókninni fylgi lýsing á verkefninu og kostnaðaráætlun. Forsvarsmaður verkefnis skal hafa samráð við verkstjóra Dalabyggðar um framkvæmd verkefnisins.

Reglur og umsóknareyðublöð um sjálfboðavinnuverkefni má finna hér:

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei