Sjálfboðaliðaverkefni

DalabyggðFréttir

Umsóknarfrestur um sjálfboðavinnuverkefni Dalabyggðar er til 29. apríl. Byggðarráð afgreiðir umsóknir. Íbúar eru hvattir til að nýta sér þetta til að hrinda í framkvæmd brýnum umhverfisverkefnum í sínu næsta nágrenni.
Almenn skilyrði fyrir úthlutun framlaga eru að umsækjandi eigi lögheimili í Dalabyggð, sé ekki í vanskilum við sveitarfélagið og að umsókninni fylgi lýsing á verkefni og kostnaðaráætlun. Forsvarsmaður verkefnis skal hafa samráð við verkstjóra Dalabyggðar um framkvæmd verkefnisins.
Skilyrði fyrir greiðslum er að verkefnið sé unnið í samræmi við umsókn, greiðslur verða aldrei hærri en framlögð áætlun og að greiðslur renna að jafnaði til þeirra aðila sem gefa út reikninga vegna vöru- eða þjónustukaupa.
Reglur og umsóknareyðublöð um sjálfboðavinnuverkefni er að finna á heimasíðu Dalabyggðar.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei