Þjóðlendukröfur í Dalasýslu

DalabyggðFréttir

Þjóðlendukröfur í Dalasýslu voru birtar með lögformlegum hætti í Lögbirtingablaðinu fimmtudaginn 18. febrúar 2016. Þar er skorað á þá sem telja til eignarréttinda á þjóðlendukröfusvæðis ríkisins að lýsa kröfum sínum skriflega fyrir óbyggðanefnd innan þriggja mánaða, nánar tiltekið í síðasta lagi miðvikudaginn 18. maí 2016.
Að loknum framangreindum fresti fer fram opinber kynning á heildarkröfum (ríkis og annarra) sem stendur í einn mánuð. Einnig verður svæðinu skipt í mál og boðað til fyrstu fyrirtöku. Málin eru síðan tekin fyrir eins oft og þörf er á, frekari gögn lögð fram og leitast við að skýra þau að öðru leyti. Loks fer fram svokölluð aðalmeðferð, með tilheyrandi vettvangsskoðun, skýrslutökum og málflutningi. Að lokinni aðalmeðferð eru mál tekin til úrskurðar og úrskurðir kveðnir upp í kjölfarið.
Verkefni óbyggðanefndar er að úrskurða um annars vegar kröfur fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkisins og hins vegar kröfur þeirra sem telja sig eiga öndverðra hagsmuna að gæta, nánar tiltekið um hvaða land telst til þjóðlendna og hver séu mörk þeirra og eignarlanda, hver séu mörk þess hluta þjóðlendu sem nýttur er sem afréttur og hver séu eignarréttindi innan þjóðlendu.
Þeir landeigendur sem hyggjast gera kröfur er því bent á að tíminn styttist óðum. Þá er landeigendum aðliggjandi jarða bent á að kanna hvort lönd þeirra skarist við kröfulýsingar.
Nákvæma afmörkun og yfirlitskort er að finna á heimasíðu óbyggðanefndar (www.obyggdanefnd.is) og á skrifstofum viðkomandi sveitarfélags og sýslumannsembættis.

Óbyggðanefnd – Þjóðlendukröfur í Dalasýslu

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei