Skráning lögheimilis

DalabyggðFréttir

Þjóðskrá Íslands gefur út íbúaskrá miðað við 1. desember ár hvert og því er mikilvægt að allir einstaklingar séu með lögheimili sitt skráð á þeim stað sem þeir hafa fasta búsetu.
Allir þeir sem eiga eftir að tilkynna breytingu á lögheimili þurfa að gera það fyrir lok nóvember svo unnt sé að tryggja að einstaklingar séu rétt skráðir í íbúaskrána.
Hægt er að tilkynna flutning á vef Þjóðskrár. Breytingin tekur þá gildi næsta dag. Sá sem tilkynnir þarf að skrá sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Breytingu á lögheimili skal tilkynna til Þjóðskrár Íslands innan 7 daga frá flutningi eða á skrifstofu þess sveitarfélags sem flutt er til, en þá tekur afgreiðslan allt að 8-10 dögum.

Samkvæmt lögheimilislögum er lögheimili sá staður, þar sem maður hefur fasta búsetu. Föst búseta er á þeim stað þar sem maður hefur bækistöð sína, dvelst að jafnaði í tómstundum sínum, hefur heimilismuni sína og svefnstaður hans er. Þetta þýðir að lögheimili manns skal jafnan vera þar sem hann býr á hverjum tíma.

Þjóðskrá Íslands

Rafræn skil á vef Þjóðskrár Íslands

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei