Rúllupylsukeppnin 2014

DalabyggðFréttir

Slow Food á Íslandi og Þaulsetur sf. standa fyrir keppni í gerð rúllupylsu í Þurranesi í Saurbæ laugardaginn 22. nóvember kl. 14.
Dómarar verða meðal annars Dominique Plédel Jónsson frá Slow Food Ísland og Kjartan H. Bragason frá Meistarafélagi kjötiðnaðarmanna.
Að gera rúllupyslu úr kindakjöti er gömul og góð hefð á íslenskum heimilum. Keppnin er haldin til að viðhalda og vekja athygli á fornum hefðum og handverki í matargerð.
Fornar verkunarhefðir og handverk í matargerð mega hvorki gleymast né staðna. Því er nausynlegt að leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín, prófa nýjar leiðir og stuðla þannig að þróun í gerð hefðbundinna matvæla.
Kynslóðirnar er því hvattar að koma saman við rúllupyslugerð, læra hver af annarri og njóta tímans saman.
Skráning í keppnina er sama dag milli kl. 13-13:30 í Þurranesi.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei