Söfnun á rúlluplasti 19.-23. apríl

DalabyggðFréttir

Rúlluplasti verður safnað á bæjum 19. – 23. apríl. Bændur eru því minntir á að hafa plastið á aðgengilegum stað fyrir sorpverktaka.

Frágangur á plastinu hjá bændum getur verið í stórsekki t.d. undan áburði eða pressað og bundið saman þannig að gott sé að koma því á bíl (litla bagga) eða í þar til gerðum gámum eða á annan snyrtilegan hátt
Baggaböndin skal setja sér í glæra plastpoka.
Óheimilt er að setja rúlluplast í sorpgáma á grenndarstöðvum sveitarfélagsins.
Opin brennsla úrgangs er óheimil þ.m.t. rúlluplasts. skv. lögum nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs og skv. reglugerð nr. 737/2003.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei